150. löggjafarþing — 47. fundur,  17. des. 2019.

tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

104. mál
[14:18]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég segi að sjálfsögðu já við þessu frumvarpi og ég er mjög glöð að sjá öll þessi grænu ljós hérna. Ég held að þetta verði til bóta, bæði fyrir vestnorrænt samstarf en ekki síður fyrir kvikmyndagerð á Íslandi.

Ég þakka stuðninginn við þetta góða mál.