140. löggjafarþing — 60. fundur,  22. feb. 2012.

tilkynning um skriflegt svar.

[15:02]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá fjármálaráðuneytinu um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 735, um forstöðumenn ríkisstofnana sem fara umfram heimildir í fjárlögum, frá Sigmundi Erni Rúnarssyni. Það er vegna umfangs og þarfar á lengri tíma við upplýsingaöflun og óskar því ráðuneytið eftir viðbótarfresti til 6. mars nk. til að svara fyrirspurninni.