148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XI. viðauka og bókun 37 við EES-samninginn.

612. mál
[17:41]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég saknaði efnislegrar útskýringar á reglugerðinni og tilhögun þess sem við ræðum í framsögu ráðherra. Kannski hafði ráðherra ekki tíma til þess, enda hljóp tíminn frá henni. Það væri ráð að taka aðra ræðu, væntanlega til að klára framsöguna og til að koma til skila efnislegum atriðum þeirrar reglugerðar sem hérna á að veita fyrirframsamþykki fyrir.

Mig langaði hins vegar að spyrja ráðherra hversu mikinn tíma hún telji þingið þurfa til að fjalla vel um þetta risastóra og mikilvæga mál. Látum það duga í bili, það virkar ágætlega.