154. löggjafarþing — 67. fundur,  7. feb. 2024.

Störf þingsins.

[15:23]
Horfa

Guðrún Sigríður Ágústsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Mig langar að gera alvarlegar athugasemdir við tillögu um samgönguáætlun 2024–2038 sem nú er til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd þingsins en lagt er til að framkvæmdum við Bíldudalsveg um Arnarfjörð verði seinkað til tímabilsins 2029–2033 í stað 2025–2029 líkt og samgönguáætlun kveður á um. Framkvæmdum á þessari leið má alls ekki seinka frekar og nauðsynlegt er að koma þessari framkvæmd af stað samhliða framkvæmdum á Dynjandisheiði. Vegurinn gegnir afar mikilvægu hlutverki við flutning afurða frá Bíldudal og þarf vart að taka það fram hversu miklu munar að geta keyrt þær afurðir um einn fjallveg í stað þriggja með tilliti til mikilvægra umhverfisþátta. Einnig mætti nefna að til þess að Vestfjarðaleið, ný ferðamannaleið á Vestfjörðum, geti nýst að fullu þarf þessi vegur að vera nothæfur og þjónustaður allt árið. Það er óásættanlegt fyrir ferðaþjónustu á þessu svæði að bíða til 2030 eða lengur með að fá fullnýttan veg. Það verður ekki gert nema með betri samgöngum. Auk þess mætti nefna aðgengi að atvinnu og þjónustu fyrir ört vaxandi samfélag á Barðaströnd ásamt því að börn á Barðaströnd gætu sótt skóla á Bíldudal en ekki Þingeyri.

Virðulegi forseti. Að mínu mati er þetta lykilþáttur í að efla, bæta og virkja uppvöxt í þessu samfélagi sem hefur í tugi ára liðið fyrir slæmar samgöngur. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)