136. löggjafarþing — 70. fundur,  22. jan. 2009.

staða efnahagsmála og horfur á vinnumarkaði, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[10:36]
Horfa

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Herra forseti. Ég fagna því að eiga þess kost að ræða um efnahags- og atvinnumál með skipulegum hætti svo skömmu eftir að þing kom saman að nýju eftir jólaleyfi.

Því verður ekki á móti mælt að efnahagshorfur hér á landi eru dökkar um þessar mundir. Það hefur verið margrætt í þessum sal og nýbirt spá fjármálaráðuneytisins ber það með sér. En við Íslendingar erum ekki einir á báti í þeim efnum. Aðstæður í nágrannalöndunum eru einnig gríðarlega erfiðar, enda er heimsbúskapurinn nú að kljást við erfiðustu kreppu sem riðið hefur yfir síðan heimskreppan mikla var á 4. áratug síðustu aldar.

Í þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins er gert ráð fyrir að hagvöxtur verði neikvæður um 9,6% á þessu ári sem er gríðarlega mikil breyting og samdráttur einkaneyslunnar verði rúm 24% að raungildi. Kaupmáttur ráðstöfunartekna mun þó dragast mun minna saman eða um rúm 13% og hefur þá verið tekið tillit til áhrifa vaxandi atvinnuleysis sem samkvæmt spánni verður 7,8% á þessu ári. Verðbólgan hefur verið erfið viðureignar upp á síðkastið, eins og við þekkjum, ekki hvað síst vegna mikils gengisfalls íslensku krónunnar á síðasta ári. Hins vegar eru flestir sammála um að góðar horfur séu á því að verðbólgan lækki hratt þegar líður á árið og verði nálægt verðbólgumarkmiði Seðlabankans undir loks ársins.

Mikill viðsnúningur hefur þegar átt sér stað í utanríkisviðskiptum þar sem innflutningur dregst hratt saman á sama tíma og útflutningur vex. Aukinn þorskkvóti á yfirstandandi fiskveiðiári, um 30 þúsund tonn, eykur að sjálfsögðu útflutning sjávarafurða, styrkir stöðu greinarinnar og bætir enn í útflutningsframleiðsluna. Vöruskiptajöfnuður verður því jákvæður um rúmlega 14% af landsframleiðslu á þessu ári sem eru mikil umskipti til hins betra frá síðustu árum.

Á næsta ári eru horfur á að hagvöxtur verði lítill sem enginn þar sem efnahagslífið verður væntanlega ekki enn búið að ná sér að fullu eftir bankaáfallið en ekki er gert ráð fyrir því að þjóðarframleiðslan dragist enn frekar saman frá því sem verður á þessu ári. En góðar horfur eru á því að þegar á næsta ári, þegar líða tekur á árið, blasi við efnahagslegur viðsnúningur og hjól efnahagslífsins geti farið að snúast af fullum krafti á nýjan leik.

Atvinnumálin hafa verið mikið í deiglunni upp á síðkastið enda fátt sem brennur meira á heimilunum en örugg atvinna sem tryggir afkomuöryggi fjölskyldunnar. Til að tryggja árangur á þessu sviði þarf annars vegar að grípa til sértækra aðgerða þar sem það á við en þegar upp er staðið er það árangur efnahagsstefnunnar í heild sem tryggir bestu niðurstöðuna fyrir alla.

Ef við lítum fyrst á heildarmyndina þá skiptir sköpum fyrir íslenskt efnahagslíf að ríkisstjórnin hefur frá því í nóvember unnið eftir skýrri efnahagsstefnu sem unnin var í samstarfi við sérfræðinga Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og liggur hún til grundvallar samstarfi Íslands og sjóðsins næstu tvö árin. Áætlunin er metnaðarfull og skýr en tekur að sjálfsögðu mið af því fordæmalausa áfalli sem íslenskt fjármálakerfi hefur orðið fyrir og þeim mikla samdrætti sem efnahagslíf okkar mun þurfa að ganga í gegnum af þeim sökum næstu tvö ár. Áætlunin er skýrt tímasett en mun þó taka breytingum eftir því sem ástandið þróast og verður endurskoðuð af sérfræðingum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á þriggja mánaða fresti.

Herra forseti. Því hefur verið haldið fram að ríkisstjórnin hafi ekkert gert til að bregðast við þeim miklu erfiðleikum sem íslenskt efnahagslíf gengur í gegnum. Þetta eru að sjálfsögðu mikil öfugmæli eins og ég vona sjáist á eftirfarandi yfirliti um þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir á undanförnum vikum og mánuðum til að koma til móts við einstaklinga og fjölskyldufólk.

1. Greiðslubyrði einstaklinga með verðtryggð lán hefur verið létt með því að beita greiðslujafnaðarvísitölu, þ.e. launavísitölu sem tekur mið af atvinnustigi.

2. Úrræðum Íbúðalánasjóðs til að koma til móts við almenning í greiðsluvanda verður fjölgað, svo sem með lengingu og skuldbreytingu lána, auknum sveigjanleika og rýmri heimildum gagnvart innheimtu.

3. Íbúðalánasjóði hafa verið veittar lagaheimildir til að leigja út húsnæði í eigu sjóðsins, til að fjölga úrræðum fyrir einstaklinga í greiðsluvanda. Heimilt verður að leita eftir samstarfi við sveitarfélög eða aðra rekstraraðila með samningi.

4. Gerðar hafa verið nauðsynlegar breytingar til bráðabirgða á lögum eða reglugerðum svo fella megi niður ýmis gjöld vegna skilmálabreytinga sem torveldað hafa skuldbreytingar á uppgreiðslu lána, svo sem stimpilgjöld og þinglýsingargjöld.

5. Felld hefur verið úr gildi heimild til að skuldajafna barnabætur á móti opinberum gjöldum.

6. Felld hefur verið úr gildi heimild til að skuldajafna vaxtabætur á móti afborgunum lána hjá Íbúðalánasjóði.

7. Barnabætur eru nú greiddar út mánaðarlega til þeirra sem það kjósa en ekki á þriggja mánaða fresti.

8. Opinberum innheimtuaðilum hafa tímabundið verið veittar frekari heimildir til sveigjanleika í samningum um gjaldfallnar kröfur sem taka mið af mismunandi aðstæðum einstaklinga.

9. Lögfestar hafa verið tímabundnar heimildir til innheimtumanna ríkissjóðs um mögulega niðurfellingu dráttarvaxta, kostnaðar og gjalda í sérstökum skýrt afmörkuðum tilfellum.

10. Öll ráðuneyti og stofnanir ríkisins hafa fengið fyrirmæli um að milda sem kostur er innheimtuaðgerðir gagnvart einstaklingum, þar með talið að takmarkað verði sem kostur er það hlutfall launa sem ríkið getur nýtt til skuldajöfnunar.

11. Lög um dráttarvexti hafa verið endurskoðuð með það að markmiði að þeir lækki.

12. Heimild til að setja reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar hefur verið nýtt.

13. Alþingi samþykkti í desember að heimila greiðslu hlutabóta vegna atvinnuleysis til að hvetja atvinnurekendur til að lækka frekar starfshlutfall en að grípa til uppsagna. Sjálfstætt starfandi einstaklingar geta nú einnig tekið að sér tilfallandi verkefni án þess að missa bótaréttinn.

14. Fyrirtækjum og stofnunum hefur einnig verið gert kleift að ráða tímabundið til sín fólk í atvinnuleit. Bætur fylgja þá starfsfólkinu. Einnig hafa réttindi atvinnulausra verið aukin til að auðvelda þeim að fara út á vinnumarkaðinn á nýjan leik, t.d. með búferlaflutningsstyrkjum.

15. Gripið hefur verið til aðgerða til að styðja við sprotafyrirtæki og verður það gert enn frekar. Á síðasta ári tók Nýsköpunarsjóður þátt í stofnun nýs öflugs fjárfestingarsjóðs, Frumtaks, sem mun styrkja þessa mikilvægu vaxtarsprota næstu árin. Einnig er mikilvægt að byggingu álvers í Helguvík miði vel og hafa stjórnvöld unnið hart að því að tryggja að það gangi eftir, m.a. með fjárfestingarsamningi í síðasta mánuði.

16. Gripið hefur verið til ýmissa aðgerða á sviði menntamála. Atvinnulausir geta fengið greiddar atvinnuleysisbætur samkvæmt áunnum réttindum sínum samhliða því að stunda ákveðið nám eða sækja námskeið. Auk þess tókst að tryggja nær öllum sem þess óskuðu inngöngu í framhaldsskóla á vorönn 2009 og leitaðist menntamálaráðuneytið eftir að skapa sveigjanleika í fjárveitingum til skóla til að svo gæti orðið.

Af þessari upptalningu má sjá að fjarstæða er að halda því fram að ríkisstjórnin hafi setið aðgerðalaus og það þekkja menn auðvitað af störfum á Alþingi vegna þess að mörg þessara mála hafa komið til kasta þingsins á liðnum vikum. Þvert á móti hefur verið unnið ötullega á öllum vígstöðvum að því að draga úr neikvæðum áhrifum efnahagserfiðleikanna á hag heimilanna.

Til viðbótar þessu má nefna að ríkisstjórnin hefur ýmist þegar hrint í framkvæmd eða er langt komin með undirbúning fjölmargra aðgerða til að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja.

1. Bönkunum var gert að setja sér skýrar viðmiðunarreglur um fyrirgreiðslu við fyrirtæki í landinu með það að markmiði að vernda störf og stuðla að áframhaldandi starfsemi lífvænlegra fyrirtækja. Reglurnar eiga m.a. að taka til lengingar lána, niðurfærslu skulda, breytingar lána í eigið fé og sameiningar fyrirtækja. Settar verði reglur sem tryggja gegnsæi í ákvörðunartöku bankanna og hlutlæga fyrirgreiðslu þar sem hugað verði að samræmdum vinnubrögðum gagnvart fyrirtækjum en innra eftirlit bankanna verði jafnframt eflt.

2. Bankarnir eru ýmist búnir eða um það bil að verða búnir að stofna sérstök eignaumsýslufélög sem hafa munu umsjón með eignarhlutum í fyrirtækjum þar sem ákveðið hefur verið að breyta skuldum í eigið fé.

3. Liðka verður fyrir stofnun endurreisnarsjóðs, öflugs fjárfestingarsjóðs atvinnulífsins með þátttöku lífeyrissjóða, banka og annarra fjárfesta. Ríkisstjórnin hvetur til þess að í fjárfestingarstefnu sinni taki endurreisnarsjóðurinn m.a. tillit til sjónarmiða er lúta að góðum stjórnarháttum og samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja, þar á meðal áherslu fyrirtækja á að viðhalda eða fjölga störfum. Auk þess verður lögð áhersla á launastefnu, jafnréttisstefnu, umhverfisstefnu, framlög til rannsókna og þróunar, mikilvægi starfsemi fyrir grunnþjónustu samfélagsins o.s.frv.

4. Fyrirtækjum sem uppfylla að öðru leyti skilyrðum laga hefur verið gert kleift að gera ársreikninga sína upp í erlendri mynt með lagasetningu sem gildir afturvirkt frá 1. janúar 2008 og hefur nokkur fjöldi fyrirtækja nýtt sér þetta þannig að ljóst er að ávinningur er að því fyrir ýmis fyrirtæki.

5. Lagt er til að skipaður verði óháður umboðsmaður viðskiptavina í hverjum banka og hefur verið auglýst eftir slíkum aðila í a.m.k. tveimur af viðskiptabönkunum. Skal hann m.a. hafa það hlutverk að gæta þess að viðkomandi banki mismuni ekki viðskiptavinum með óeðlilegum hætti, að ferli við endurskipulagningu fyrirtækja og aðrar mikilvægar ráðstafanir sé gagnsætt og skráð og bankinn gæti að samkeppnissjónarmiðum. Bankaráð velji umboðsmann í hverjum banka og tryggi að hann geti sinnt eftirliti sínu.

6. Við endurskipulagningu fyrirtækja verði valdar leiðir sem efla samkeppni og hamla henni sem minnst. Á sama hátt verði svigrúm til að draga úr fákeppni eða markaðsráðandi stöðu nýtt sem kostur er. Þeim tilmælum er beint til bankaráða að hafa hliðsjón af þeim meginreglum um samkeppnissjónarmið sem koma fram í nýlegu áliti Samkeppniseftirlitsins.

7. Ríkisstjórnin lýsir yfir vilja til að greiða fyrir uppgjöri við erlenda kröfuhafa með því að bjóða þeim hlutafé í nýju bönkunum, m.a. í því skyni að tryggja endurfjármögnun þeirra, fjölbreyttara bankaumhverfi og greiða fyrir eðlilegum lánaviðskiptum innlendra aðila og erlendra banka.

8. Stjórnvöld hafa hugsað sér að greiða með lagasetningu fyrir langtímaeign lífeyrissjóða á fasteignum sem þeir hafa lánað fyrir. Þannig má bjóða einstaklingum og fyrirtækjum sem missa fasteignir sínar að búa eða starfa þar áfram með því að leigja fasteignirnar af lífeyrissjóðunum.

9. Lögð verði sérstök áhersla á mannaflsfrekar atvinnuskapandi aðgerðir á vegum ríkisins og samstarfs leitað við sveitarfélög um tímasetningu framkvæmda með það fyrir augum að standa vörð um atvinnu fólks og auka hagkvæmni. Samgönguráðherra vinnur sérstaklega að þessu máli.

10. Stjórnvöld munu beita sér fyrir endurskoðun á ákvæðum hlutafélagalaga, skattalaga og annarra laga í því skyni að auðvelda stjórnendum fyrirtækja að komast í gegnum tímabundna erfiðleika vegna efnahagsástandsins.

11. Ríkisstjórnin mun í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins fara yfir reglur um gjaldeyrishömlur, sem ætlað er að styrkja gengi krónunnar, til að takmarka neikvæð hliðaráhrif þeirra eins og kostur er.

Þessi aðgerðalisti staðfestir vonandi að ríkisstjórnin hefur unnið hörðum höndum að viðbrögðum við efnahagserfiðleikunum jafnframt því að skapa hér forsendur fyrir endurreisn efnahagslífsins. Við listann má bæta aðgerðum í þágu heimilanna, en eins og áður hefur komið fram í þessum sal hefur á vegum dómsmálaráðuneytisins verið unnið að breytingum á gjaldþrotalögum til að greiða fyrir svokallaðri greiðsluaðlögun einstaklinga. Það frumvarp kemur vonandi inn í þingið á allra næstu dögum.

Herra forseti. Ég vil víkja frekar að efnahagsáætluninni sem ríkisstjórnin hefur gert í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og vinnur nú eftir. Áætlunin tekur skýrt mið af ástandinu sem nú ríkir í efnahags- og fjármálalífi þjóðarinnar. Meginmarkmið hennar eru þrjú og miða öll að því grundvallarmarkmiði að endurvekja traust og trúverðugleika hagkerfisins og búa í haginn fyrir bætta fjárhagsstöðu íslenskra heimila og fyrirtækja eins fljótt og auðið er.

Fyrsta markmið áætlunarinnar er að koma stöðugleika á gengi krónunnar og tryggja hratt lækkandi verðbólgu. Þetta er ekki síst mikilvægt vegna þess hversu skuldsett fyrirtæki og einstaklingar eru í erlendri mynt og verðtryggðum lánum. Fátt mundi því verða meira til hagsbóta fyrir heimilin og flest fyrirtæki í landinu en styrking krónunnar og aukinn verðstöðugleiki. Lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og vinaþjóða eru hugsuð til að greiða fyrir því að þetta markmið náist, að vera til taks sem varasjóður á gjaldeyrismarkaðnum.

Alþingi samþykkti lög um gjaldeyrishöft í lok nóvember og hefur sú lagasetning að því er best verður séð að flestu leyti skilað því sem til var ætlast. Krónan styrktist nokkuð í fyrstu en hefur síðan gefið nokkuð eftir. Það kemur á óvart í ljósi þess að metafgangur var á vöruskiptum við útlönd í desember ásamt því að vaxtamunur við útlönd hefur aukist nokkuð. Ötullega er unnið að því að straumlínulaga reglurnar og fylgja eftir framkvæmd þeirra svo viðsnúningur í utanríkisviðskiptum skili sér í styrkingu krónunnar sem hefur í för með sér augljósan hag fyrir allan almenning og stærstan hluta íslenskra fyrirtækja.

Þrátt fyrir að mikilvægir áfangasigrar hafi náðst í gengis- og verðlagsmálum eru enn stór viðfangsefni sem bíða úrlausnar. Næstu skref snúa að því að fullmóta stefnu um það hvenær og hvernig dregið verður úr höftum á gjaldeyrismarkaði og stýrivextir lækkaðir. Því fyrr sem það gerist, því fyrr sem jákvæð staða í utanríkisviðskiptum skilar styrkara gengi, þeim mun styttra er í að vextir geti lækkað. Ljóst er að vilji er til að lyfta og afnema gjaldeyrishöftin um leið og tækifæri gefst en slík höft hafa almennt neikvæð áhrif á hagkerfi til lengri tíma litið og eru því í sjálfu sér aðeins hugsuð til skamms tíma og eru raun og veru neyðaraðgerð, eins og mönnum er kunnugt um. Hins vegar mun verða einhver bið á því að fjármagnsflæði verði fullkomlega frjálst og ljóst að ekki verður mögulegt að lina höftin fyrr en aukinn stöðugleiki hefur komist á gengi krónunnar og ljóst er hvernig stýritæki Seðlabankans vinna við nýjar aðstæður. Einnig er nauðsynlegt að gæta aðhalds í peningamálastefnu þegar höftum verður létt en búast má við að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir hröðum skrefum um leið og tækifæri gefst.

Annað markmið efnahagsáætlunarinnar er að ná tökum á ríkisfjármálum í ljósi þeirra miklu byrða sem ríkissjóður axlar vegna endurfjármögnunar bankakerfisins og þess mikla halla sem verður fyrirsjáanlegur á ríkissjóði á næstu árum.

Greiðslubyrði lána verður mjög mikil næstu ár þar sem brúttóskuldir hins opinbera verða mjög háar. Hins vegar koma þar á móti allmiklar eignir og því er nettóskuldin mun lægri eða hugsanlega nærri 70% af landsframleiðslu. Við núverandi aðstæður er þetta mat að sjálfsögðu mikilli óvissu undirorpið. En gangi þessar áætlanir eftir verður nettóskuldastaða ríkisins ekki fjarri því sem gerist að meðaltali á evrusvæðinu. Ég vil leggja sérstaka áherslu á þetta atriði þar sem hér hafa því miður verið á ferðinni miklar rangfærslur í þessum efnum.

Starf vegna stefnu stjórnvalda í ríkisfjármálum hefur beinst sérstaklega að breytingum á fjárlagafrumvarpi ársins 2009 í ljósi nýrra aðstæðna frá því að efnahagsáætlun stjórnvalda var samþykkt. Nauðsynlegt reyndist að bæta afkomu ríkissjóðs með því að draga úr útgjöldum og auka tekjur um 45 milljarða fyrir árið 2009 miðað við það sem annars hefði orðið. Halli ársins samkvæmt fjárlögunum verður því nærri 154 milljarðar kr. sem samsvarar um 10% af áætlaðri landsframleiðslu. Miðað hefur verið við að verja grunnþjónustu ríkisins í mennta-, heilbrigðis-, félags- og löggæslumálum. Í ljósi þess hefur ríkisstjórnin sem fyrr einnig kynnt aðgerðaáætlanir fyrir heimili og fyrirtæki en fjárhagsleg staða ríkissjóðs setur slíkum aðgerðum augljóslega ákveðin takmörk.

Við núverandi aðstæður eru aðeins tvær leiðir færar til að fjármagna fjárlagahallann. Annars vegar er hægt að ganga á inneign ríkissjóðs hjá Seðlabanka Íslands sem er sem betur fer mikil og hefur safnast upp á undanförnum árum. Hægt er að ganga á þá inneign en áætlað er að allt að 100 milljarðar kr. verði nýttir af reikningi ríkissjóðs til að fjármagna hallann á þessu ári. Frekari úttektir gætu hins vegar skapað hættu á hækkandi verðbólgu.

Hin leiðin til að fjármagna ríkissjóðshallann er útgáfa ríkisskuldabréfa. Mikil aukning í útgáfu slíkra bréfa gæti leitt til hækkandi vaxta. Hvorug leiðin er því kostnaðarlaus fyrir heimili og fyrirtæki í landinu sem munu um síðir þurfa að greiða niður skuldir ríkissjóðs vegna hallans. Vinna er einnig hafin í mótun ríkisfjármála til næstu þriggja til fjögurra ára. Stefnt er að því að slík stefna verði birt fullmótuð á fyrri hluta þessa árs en mikilvægt er að ráðuneyti og stofnanir fái skýra mynd af fjárveitingum sínum næstu árin til að hægt sé að grípa til viðeigandi sparnaðaraðgerða. Skýr markmið til næstu ára ættu að skapa grundvöll til endurskipulagningar.

Þriðja markmið stjórnvalda er að endurbyggja íslenskt bankakerfi svo það geti veitt einstaklingum og fyrirtækjum ábyrga og kröftuga þjónustu en vel virkt fjármálakerfi er, eins og allir vita, grundvöllur enduruppbyggingar í hagkerfinu og forsenda þess að fyrirtækin í landinu nái að blómstra. Starfið er hins vegar tröllaukið þar sem um 85% bankakerfisins er hrunið og er það hlutfallslega mesta áfall sem nokkurt fjármálakerfi í heiminum hefur orðið fyrir. Stefnt er að því að ríkissjóður veiti eigin fé inn í ríkisbankana þrjá sem nemur allt að 400 milljörðum kr. Þessi tilhögun var samþykkt í fjárlögum fyrir árið 2009. Ekki mun reynast nauðsynlegt að fara í sérstakar skuldabréfaútgáfur vegna þessa. Því ætti endurfjármögnun kerfisins ekki að hafa áhrif á vaxtastigið í landinu að þessu leyti. Einnig er unnið að því að styrkja stoðir sparisjóða og annarra smærri fjármálastofnana sem margar hverjar hafa orðið fyrir áföllum vegna lánsfjárkreppunnar. Einnig hefur verið ákveðið að endurfjármagna Seðlabankann að hluta til með útgáfu skuldabréfs, eins og fram hefur komið, og er verið að ganga frá þeim málum.

Til að tryggja framgang mála varðandi endurreisn bankakerfisins og gera tillögur um frekari aðgerðir sem miða að enduruppbyggingu þess hefur verið skipuð sérstök nefnd undir forustu virts sænsks bankasérfræðings sem auk þess var starfsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til margra ára. Þá hefur finnskur fjármálasérfræðingur verið ráðinn til að endurskoða reglur og lagaumhverfi fjármálakerfisins. Loks má nefna að við höfum gert samning við virt alþjóðlegt fjármálafyrirtæki, Oliver Wyman, um að hafa yfirumsjón með verðmæti nýju og gömlu bankanna. Allt miðar þetta að því að endurreisa íslenskt bankakerfi og skapa því trúverðugleika og traust á nýjan leik. Til að svo megi verða þurfa öll vinnubrögð að vera gagnsæ og vinna þarf af fagmennsku og ábyrgð.