146. löggjafarþing — 75. fundur,  30. maí 2017.

dómstólar og breytingalög nr. 49/2016.

481. mál
[17:52]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um dómstóla og breytingalögum frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar. Nefndin fjallaði um málið.

Með frumvarpinu eru lagðar til litlar og eins konar tæknilegar breytingar á gildandi lögum um dómstóla, varðandi fjölda dómara í Hæstarétti. Þar er í rauninni lagt til að ekki verði ráðið í embætti hæstaréttardómara sem losna á þessu ári, en þannig er komið til móts við það fyrirkomulag í lögunum að fjöldi dómara við Hæstarétt skuli vera sjö.

Í frumvarpinu eru einnig lagðar til breytingar á lögum um breytingu á lögum um meðferð einkamála og lögum um meðferð sakamála hvað varðar meðferð sakamála sem áfrýjað hefur verið til Hæstaréttar en er enn ólokið 1. janúar 2018. Lagt til að Landsréttur taki við þeim málum og ljúki meðferð þeirra. Þannig er létt af Hæstarétti meðferð sakamála sem er ólokið þegar Landsréttur tekur til starfa og stuðlað að jafnvægi milli fjölda mála sem Hæstiréttur mun ljúka og fækkunar dómara í Hæstarétti.

Það var einnig rætt um fyrirhugaðar breytingar á skipan dómstóla. Meiri hluti nefndarinnar ítrekar að meðan á undirbúningi stendur er nauðsynlegt að gera vissar lagabreytingar til að tryggja vandaða innleiðingu á nýrri dómstólaskipan hér á landi og einnig málsmeðferð á öllum dómstigum. Við leggjum til tvær breytingartillögur við málið sem eru tæknilegs eðlis og fela í sér leiðréttingar á lögum um meðferð sakamála vegna nýrra dómstólalaga og breytingu á fyrirsögn frumvarpsins til að tryggja skýrleika frumvarpsins.

Breytingar eru svo að í stað orðsins „Dómstólaráð“ í 3. mgr. 123. gr. laganna kemur: Dómstólasýslan.

Við 59. gr. laganna bætist nýr liður, svohljóðandi: Í stað orðsins „Hæstiréttur“ í 3. mgr. 202. gr. laganna kemur: Landsréttur.

Þá er lagt til að fyrirsögn frumvarpsins orðist svo: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um dómstóla, nr. 15/1998, og lögum um breytingu á lögum um meðferð einkamála og lögum um meðferð sakamála, nr. 49/2016.

Undir þetta rita undirrituð, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, og hv. þingmenn Brynjar Níelsson, Nichole Leigh Mosty, Vilhjálmur Árnason, Pawel Bartoszek og Iðunn Garðarsdóttir.