149. löggjafarþing — 75. fundur,  5. mars 2019.

störf þingsins.

[13:31]
Horfa

Ásgerður K. Gylfadóttir (F):

Virðulegur forseti. Meiri hluti landsmanna er andvígur því að slakað verði á reglum um innflutning á ferskum matvælum, samkvæmt könnun sem Zenter rannsóknir unnu fyrir Fréttablaðið og fjallað er um í blaðinu í dag og á vef þess. Það kemur ekkert sérstaklega á óvart að andstaðan er meiri á landsbyggðinni þar sem návígið við framleiðsluna er meira en á suðvesturhorninu. Bann við innflutningi á hráu kjöti og ferskum matvælum snýst um sérstöðu Íslands til framtíðar. Framtíðarhagsmunir íslensks samfélags eru undir. Þeir hagsmunir eru miklu stærri en hagsmunir einstakra stétta í nútíðinni.

Varðandi viðskiptaþáttinn er íslenskur markaður lítill í alþjóðlegum samanburði og vega því hagsmunir okkar þyngra í heildarsamhenginu. Það ætti að vera metnaður okkar Íslendinga að berjast fyrir sjálfbærni landsins og auknu matvælaöryggi. Það er ekki hræðsluáróður að benda á að heilbrigði búfjárstofna á Íslandi er með því besta sem gerist í heiminum og notkun sýklalyfja í landbúnaði með því minnsta sem þekkist.

Ræktum landið, verndum þá sérstöðu sem við höfum hér í heilbrigði búfjárstofna og leggjum þar inn á loftslagsreikninginn sem framtíðarkynslóðir kalla eftir að við sinnum betur en nú er gert.