139. löggjafarþing — 8. fundur,  12. okt. 2010.

kosning saksóknara Alþingis og varasaksóknara, skv. 13. gr. laga nr. 3 19. febr. 1963, sbr. ályktun Alþingis 28. sept. 2010 um málshöfðun gegn ráðherra.

[14:43]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Óskað hefur verið eftir skriflegri kosningu og verður orðið við því. Þingverðir útbýta þá seðlum til þingmanna en þeir rita nafn þess sem þeir vilja kjósa á seðilinn eða skila eftir atvikum auðum seðli.