143. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2013.

byggingarvörur.

61. mál
[16:46]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um byggingarvörur. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð ESB nr. 305/2011 um samræmd skilyrði fyrir markaðssetningu byggingarvara. Reglugerðinni er ætlað að leysa af hólmi eldri tilskipun ráðsins 89/106/EBE um samræmd skilyrði fyrir markaðssetningu byggingarvara. Sú tilskipun var innleidd á sínum tíma með reglugerð um viðskipti fyrir byggingarvörur nr. 431/1994.

Ákvæði um viðskipti með byggingarvörur eru í lögum um mannvirki. Er gert ráð fyrir að frumvarp þetta, verði það að lögum, leysi af hólmi þau ákvæði laga um mannvirki.

Reglugerð ESB um samræmd skilyrði fyrir markaðssetningu byggingarvara tók gildi í apríl 2011 innan Evrópusambandsins, en gildistöku meginhluta hennar var hins vegar frestað til 1. júlí 2013. Afar mikilvægt er fyrir byggingarvörumarkað á Íslandi, m.a. í ljósi markmiðs um frjálst flæði byggingarvöru innan Evrópu, að reglugerðin verði innleidd sem fyrst og þar með það sameiginlega kerfi sem reglugerðin gerir ráð fyrir. Að öðrum kosti verður samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja á því sviði ekki tryggð.

Hin nýja reglugerð ESB er skýr og ítarleg og tók undirbúningur hennar langan tíma. Því er ekki fyrirsjáanlegt að breytingar á henni verði tíðar innan Evrópusambandsins. Vegna þessa og til að tryggja skýra lagastoð hennar er reglugerðin lögð fram sem fylgiskjal með frumvarpi þessu og þar með lagt til að henni verði veitt beint lagagildi. Ég vil benda hv. þingmönnum á að hún er í beinu framhaldi af frumvarpinu, síðan koma athugasemdir við greinar frumvarpsins og frumvarpið almennt þar fyrir aftan.

Í september 2012 hélt ráðuneytið ásamt Mannvirkjastofnun samráðsfund með Samtökum iðnaðarins og Samtökum verslunar og þjónustu um efni reglugerðar um samræmd skilyrði fyrir markaðssetningu byggingarvara og innleiðingu hennar. Voru drög að frumvarpi þessu í kjölfarið send níu aðilum til umsagnar. Ráðuneytinu bárust umsagnir um frumvarpið frá nokkrum aðilum og voru í kjölfarið gerðar nokkrar breytingar á frumvarpsdrögunum.

Í hinni nýju reglugerð um samræmd skilyrði fyrir markaðssetningu byggingarvara er að meginstefnu til byggt á sömu sex grunnkröfunum og í eldri tilskipun auk nýrrar grunnkröfu um sjálfbærni. Byggingarvara skal því henta til byggingar mannvirkja og fullnægja tilteknum grunnkröfum sem flokkaðar eru í burðarþol og stöðugleika, varnir gegn eldsvoða, hollustu, heilsu og umhverfi, öryggi við notkun, hávaðavarnir, orkusparnað, hitaeinangrun og síðan sjálfbæra nýtingu auðlinda, eins og áður var sagt.

Samkvæmt reglugerðinni ber framleiðendum að gera yfirlýsingu um nothæfi byggingarvöru áður en hún er sett á markað, þ.e. ef varan fellur undir samhæfðan staðal eða samræmist evrópsku tæknimati sem gefið hefur verið út fyrir vöruna. Í eldri tilskipun er fjallað um tæknisamþykki í stað evrópsks tæknimats.

Í samhæfðum stöðlum og evrópsku tæknimati er sagt til um hvaða aðferðum framleiðandi skal beita til að meta nothæfi byggingarvöru. Í yfirlýsingu um nothæfi byggingarvöru skal koma fram til hvaða nota varan er ætluð og felst í henni greining á því hvaða mikilvægu eiginleika varan hefur og þannig hvaða eiginleikar hennar tengjast grunnkröfunum fyrir mannvirki. Með yfirlýsingu ábyrgist framleiðandinn samræmi byggingarvörunnar við tilgreint nothæfi.

Í reglugerð um samræmd skilyrði fyrir markaðssetningu byggingarvara er skýrt kveðið á um skyldu til að CE-merkja byggingarvörur sem falla undir samhæfða staðla eða evrópskt tæknimat. Sú skylda er nú þegar til staðar í lögum um mannvirki. Byggingarvörum sem skylt er að CE-merkja hefur fjölgað mikið á síðustu árum en um það bil 420 samhæfðir staðlar og 3.000 tæknisamþykki hafa verið gerð á grundvelli eldri tilskipunar.

Ákvæði í reglugerðinni um skyldur framleiðenda, innflytjenda og dreifenda fela ekki í sér neinar grundvallarbreytingar frá fyrra fyrirkomulagi, en eru þó mun skýrari en áður. Falli byggingarvara undir samhæfðan staðal er skylt að gera yfirlýsingu um nothæfi fyrir vöruna og CE-merkja hana. Geri hún það ekki hefur framleiðandi val um það hvort hann sækir um evrópskt tæknimat vegna hennar sem veitir honum rétt til að CE-merkja vöruna, eða hvort hann markaðssetur hana án CE-merkis. Mun ítarlegri og skýrari reglur eru í hinni nýju reglugerð um kröfur til þeirra sem gefa út evrópskt tæknimat og ítarlegri reglur um málsmeðferð.

Tilkynningaryfirvöld, þ.e. stjórnvöld, tilnefna tæknimatsstofnanir og fylgjast með starfsemi og hæfi þeirra. Íslensk stjórnvöld tilkynntu Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem tæknisamþykkisstofnun á grundvelli tilskipunar 89/106/EBE. Ekkert evrópskt tæknisamþykki hefur þó enn verið gefið út á Íslandi.

Aðildarríkjum ber að tilkynna framkvæmdastjórninni og öðrum aðildarríkjum um aðila sem hafa heimild til að framkvæma samræmismat. Byggt er á sama kerfi og áður en ítarlegri reglur eru um samræmismatið og auknar kröfur gerðar til tilkynntra aðila, en þeim er heimilt að starfa á öllu Evrópska efnahagssvæðinu og gilda niðurstöður þeirra óháð landamærum. Í reglugerðinni er leitast við að taka upp einfaldari og hagkvæmari málsmeðferð, sérstaklega fyrir smærri fyrirtæki þar sem ferli CE-merkingar hefur verið talið íþyngjandi og dýrt.

Frumvarp þetta er í fjórum köflum ásamt reglugerð ESB nr. 305/2011, sem er fylgiskjal með frumvarpinu eins og áður hefur komið fram.

Í I. kafla frumvarpsins er kveðið á um þá meginreglu laga um mannvirki að óheimilt sé að nota byggingarvörur til mannvirkjagerðar nema þær uppfylli kröfur laganna. Einnig er kveðið á um ábyrgð eiganda mannvirkis, en hann kostar gerð mannvirkisins og rekstur og ber því endanlega ábyrgð á vali á byggingarefni. Um ábyrgð fagaðila fer hins vegar samkvæmt mannvirkjalögum.

Í II. kafla frumvarpsins er fjallað nánar um framkvæmd reglugerðar ESB nr. 305/2011. Lagt er til að Mannvirkjastofnun gegni hlutverki vörutengiliðs fyrir byggingariðnaðinn og upplýsingar frá stofnuninni séu að meginreglu til veittar án endurgjalds. Lagt er til að yfirlýsing um nothæfi byggingarvöru skuli vera á íslensku, ensku eða Norðurlandamáli öðru en finnsku og að leiðbeiningar um notkun byggingarvöru og upplýsingar um öryggi skuli vera á íslensku eða ensku. Hins vegar þykir nægilegt að gögn um byggingarvöru sem afhenda ber Mannvirkjastofnun geti verið á tungumáli sem stofnunin samþykkir.

Í frumvarpinu er lagt til að ráðherra tilnefni tæknimatsstofnanir og annist eftirlit með þeim. Ráðherra sér einnig um tilkynningar til stjórnvalda á EES-svæðinu um aðila sem hafa heimild til að framkvæma verkefni þriðja aðila við mat á nothæfi og samprófun og stöðugleika þess og hefur eftirlit með tilkynntum aðilum.

Í reglugerð um samræmd skilyrði fyrir markaðssetningu byggingarvara er einungis heimilt að nota þær aðferðir sem tilgreindar eru í samhæfðum stöðlum eða evrópsku tæknimati og eru samhæfðir staðlar því skyldubundnir. Í frumvarpinu er því gert ráð fyrir að samhæfðir evrópskir staðlar sem samþykktir eru á grundvelli reglugerðarinnar og innleiddir af Staðlaráði séu skyldubundnir og yfirlit yfir þá sé birt á vefsíðu Mannvirkjastofnunar.

Í III. kafla frumvarpsins eru settar fram kröfur er varða byggingarvörur sem ekki falla undir samhæfðan evrópskan staðal eða evrópskt tæknimat og eru því utan gildissviðs reglugerðar ESB nr. 305/2011. Meginreglan er sú að gera skal yfirlýsingu um nothæfi byggingarvöru áður en hún er markaðssett eða notuð í mannvirki, sambærilega yfirlýsingu um nothæfi samkvæmt reglugerðinni.

Í kaflanum eru einnig tilgreindir þeir eiginleikar og þættir vörunnar sem gera þarf grein fyrir og krafa gerð um staðfestingu óháðs aðila á nothæfi byggingarvöru.

Gert er ráð fyrir að staðfestingar á nothæfi sem gefnar eru út af viðurkenndum aðilum á EES-svæðinu séu að meginreglu til teknar á Íslandi. Undantekning frá þessu er ef um er að ræða byggingarvöru sem hefur eiginleika þar sem taka þarf tillit til séríslenskra aðstæðna. Það er til dæmis þekkt að lagnaefni sé almennt ekki prófað erlendis fyrir það hitastig sem algengt er hjá íslenskum veitum.

Að lokum er í IV. kafla frumvarpsins fjallað um opinbert markaðseftirlit, heimild til skoðunar og upplýsingaskyldu, réttarúrræði Mannvirkjastofnunar, dagsektir, förgun byggingarvöru og lagfæringu og fleira. Ákvæði þessi eru að mestu leyti sambærileg eða samhljóða gildandi ákvæðum mannvirkjalaga.

Virðulegi forseti. Ég hef hér rakið meginefni frumvarpsins. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.