Heimsókn varaforseta neðri málstofu breska þingsins.
Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Ég vek athygli háttvirtra alþingismanna á því að varaforseti neðri málstofu breska þingsins, frú Sylvia Heal, er stödd á þingpöllum ásamt fylgdarliði.
Varaforsetinn og fylgdarlið eru stödd hér á landi í boði Alþingis. Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða frú Sylviu Heal og fylgdarlið velkomið í Alþingishúsið og vænti þess að heimsókn þeirra til Íslands verði til að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru á milli landanna.
Alþingi vottar varaforseta neðri málstofu breska þingsins og bresku þjóðinni vináttu og virðingu. Ég bið háttvirta alþingismenn að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]