131. löggjafarþing — 87. fundur,  10. mars 2005.

Breyting á XXII. viðauka við EES-samninginn.

436. mál
[11:54]

Frsm. utanrmn. (Sólveig Pétursdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti utanríkismálanefndar á þskj. 947. Þetta er mál 436, tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 56/2004, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 56/2004 frá 23. apríl 2004, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/58/EB frá 15. júlí 2003 um breytingu á tilskipun ráðsins 68/151/EBE að því er varðar birtingarskyldu félaga af tiltekinni gerð.

Nefndin fékk til fundar við sig þau Ernu S. Hallgrímsdóttur frá utanríkisráðuneyti, Jón Ögmund Þormóðsson frá viðskiptaráðuneyti, Elmar Hallgrímsson frá fjármálaráðuneyti og Skúla Jónsson frá ríkisskattstjóra.

Með tilskipuninni er gerðar breytingar á fyrstu félagaréttartilskipuninni frá 1968 varðandi skráningu félaga þannig að skrá megi upplýsingar rafrænt en markmiðið er að auðvelda aðgang að upplýsingum um félög og einfalda formsatriði um birtingu upplýsinga.

Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og er lokafrestur til þess 1. janúar 2007.

Hæstv. forseti. Utanríkismálanefnd leggur til að tillagan verði samþykkt.

Undir nefndarálit þetta skrifa hv. þm. Sólveig Pétursdóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson, Siv Friðleifsdóttir, Bjarni Benediktsson, Steingrímur J. Sigfússon, Birgir Ármannsson, Jónína Bjartmarz og Þórunn Sveinbjarnardóttir.