131. löggjafarþing — 101. fundur,  1. apr. 2005.

Varamenn taka þingsæti.

[10:31]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá hv. 6. þm. Suðurk., Hjálmari Árnasyni, dagsett 31. mars 2005:

„Ég er á förum til útlanda í erindum Alþingis og get því ekki sótt þingfundi á næstunni. Óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Suðurk., Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

 

Einnig hefur borist svohljóðandi bréf frá 3. þm. Norðaust., Kristjáni L. Möller, dagsett 31. mars 2005:

„Ég er á förum til útlanda í erindum Alþingis og get því ekki sótt þingfundi á næstunni. Óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Norðaust., Lára Stefánsdóttir framkvæmdastjóri, Akureyri, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

 

Ísólfur Gylfi Pálmason og Lára Stefánsdóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru þau boðin velkomin til starfa á nýjan leik.