132. löggjafarþing — 40. fundur,  9. des. 2005.

Tekjustofnar sveitarfélaga.

364. mál
[18:07]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Hér er kveðið á um að greiða skuli fasteignaskatt af sjúkrastofnunum, skólum, heimavistum, leikskólum, íþróttahúsum og bókasöfnum.

Við teljum ekki rétt að færa slíkar velferðarstofnanir, samfélagslegar stofnanir, undir fasteignaskattinn og getum þar af leiðandi ekki stutt þessa lagabreytingu.