132. löggjafarþing — 104. fundur,  19. apr. 2006.

Breyting á starfsáætlun.

[12:30]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Forseti átti í morgun fund með formönnum þingflokka og þar komu vissulega fram andmæli frá stjórnarandstöðuflokkunum við fundarhaldið. En forseti áformar að halda fund með formönnum að nýju næstkomandi föstudag enda kom fram ósk um það á fundi í morgun. Forseti vonar að mál skýrist eitthvað á þeim fundi.