133. löggjafarþing — 3. fundur,  4. okt. 2006.

varnarmál, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[13:31]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Áður en umræðan hefst vill forseti geta þess að samkomulag er á milli þingflokkanna um ræðutíma í umræðunni og er hann þessi: Ráðherra hefur 20 mínútur í framsögu sinni og síðan 5 mínútur í lok umræðunnar. Þingflokkarnir hafa að öðru leyti 15 mínútur í fyrri umferð og 10 mínútur í síðari umferð.