133. löggjafarþing — 8. fundur,  9. okt. 2006.

Aðgerðir til að jafna flutningskostnað.

[15:21]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F):

Hæstv. forseti. Við munum gera það svo fljótt sem þessum athugunum og vinnslu lýkur og samkomulag verður um það. En það er ástæða til að taka það fram að einmitt í dag var tilkynnt um breytingar á virðisaukaskatti sem snertir þessi mál að hluta til.