133. löggjafarþing — 17. fundur,  31. okt. 2006.

varamaður tekur þingsæti.

[13:31]
Hlusta

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf um forföll þingmanns frá Einari K. Guðfinnssyni, 4. þm. Norðvest., dagsett 30. október:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvest., Guðjón Guðmundsson, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“

Guðjón Guðmundsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.