133. löggjafarþing — 73. fundur, 19. feb. 2007.
ráðstefna klámframleiðenda.
Virðulegi forseti. Ég skal viðurkenna að ég hef ekki kynnt mér heimasíðu þessara aðila en ég geng út frá því að lögreglan á Íslandi muni tryggja það að íslenskum lögum verði framfylgt gagnvart þessum hópum jafnt sem öðrum sem hingað kunna að koma í annarlegum tilgangi.