133. löggjafarþing — 94. fundur, 17. mars 2007.
færanleg sjúkrastöð í Palestínu.
7. mál
Frú forseti. Utanríkismálanefnd hefur fjallað um þetta mál. Umsagnir um málið bárust nefndinni frá Félaginu Ísland – Palestína, landlækni, Rauða krossi Íslands og Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Að athuguðu máli telur nefndin rétt að þessu máli verði vísað til ríkisstjórnarinnar.