135. löggjafarþing — 69. fundur,  26. feb. 2008.

tilkynning um dagskrá.

[13:33]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Forseti vill láta þess getið að um klukkan tvö í dag, að loknum umræðum um störf þingsins, fer fram utandagskrárumræða um úthlutun byggðakvóta. Málshefjandi er hv. þm. Guðni Ágústsson. Hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.