136. löggjafarþing — 11. fundur,  13. okt. 2008.

fjármálafyrirtæki.

14. mál
[15:25]
Horfa

Valgerður Sverrisdóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég kannast við það mál sem hér er til umfjöllunar og flutt er af hv. þingmönnum Vinstri grænna. Þeir hafa flutt þetta mál alloft og hv. þingmaður vitnar til Bandaríkjanna. En það vill svo til að við erum ekki á bandaríska efnahagssvæðinu heldur evrópska og því spyr ég hv. þingmann hvort hann hafi kynnt sér hvort það samræmist reglum sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu að fara að tillögum hv. þingmanns.