139. löggjafarþing — 8. fundur,  12. okt. 2010.

umfjöllun fjárlaganefndar og menntamálanefndar um skýrslur Ríkisendurskoðunar.

[14:03]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vil tilkynna að með bréfi dagsettu 7. október hefur forseti óskað eftir því við fjárlaganefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga janúar til ágúst 2010.

Einnig hefur forseti með bréfi dagsettu 7. október sl. óskað eftir því við menntamálanefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd þjónustusamnings við Menntaskólann Hraðbraut.

Þetta er í samræmi við reglur um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar sem forsætisnefnd samþykkti 12. febrúar 2008.