139. löggjafarþing — 68. fundur,  1. feb. 2011.

Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála.

386. mál
[16:38]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Nú er ég búinn að vera svo jákvæður í dag í garð hæstv. innanríkisráðherra að ég ætla að leyfa mér að vera svolítið neikvæður í garð þingsins. Mér finnst það ekki mjög til þess að efla margumtalaða virðingu þingsins að þegar hæstv. samgönguráðherra mælir hér fyrir hverju stórmálinu á fætur öðru í samgöngumálum skuli ekki nema einn þingmaður í samgöngunefnd vera viðstaddur slíkar umræður.