140. löggjafarþing — 19. fundur,  9. nóv. 2011.

Vestfjarðavegur 60.

[15:43]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Mér þótti vænt um að hv. þingmaður Eyrún Sigþórsdóttir vék að því samráðsferli sem efnt var til í sumar um vegaframkvæmdir á sunnanverðum Vestfjörðum. Hún sagði réttilega að í fyrsta sinn í áratug hefðu komið að sama borði fulltrúar þeirra aðila sem tengst hafa þeim miklu deilum sem staðið hafa um vegaframkvæmdir þarna. Síðan sagði hún að hún harmaði þá niðurstöðu sem nú lægi fyrir. Ég vil benda á að engin endanleg niðurstaða liggur fyrir. En mig langar til að setja málin í samhengi.

Eftir er að ganga frá tveimur vegarköflum. Í fyrsta lagi er það vegkaflinn frá Eiði við Vattarfjörð að Þverá í Kjálkafirði. Þessi kafli er vonandi að koma núna úr umhverfismati og samningum við landeigendur og fara í útboð. Gangi það eftir, sem ég vona að gerist núna fyrir áramótin, erum við að tala um framkvæmdir í þrjú ár sem kosta um 3 milljarða kr., milljarður á ári hverju. Í öðru lagi standa eftir vegabætur í Gufudalssveit. Þar hafa deilurnar verið mestar. Við fengum fulltrúa frá Háskólanum á Akureyri auk náttúrufræðinga, fulltrúa frá Skipulagsstofnun, sveitarfélögunum og nánast öllum sem að þessum málum hafa komið og þeir sögðu að það lægi á að hraða framkvæmdum. Það sem helst hefur staðið í mönnum eru vegirnir yfir hálsana, Hjallaháls og Ódrjúgsháls.

Ég setti fram þá tillögu að við forgangsröðuðum í framkvæmdaröðinni á annan hátt, létum vegaumbætur á þeim kafla sem ég vék að fyrst bíða og færum fyrst í að laga hálsana eins og Vegagerðin telur að sé gerlegt að gera. Þessu höfnuðu sveitarstjórnarmenn á svæðinu algerlega, tóku algerlega út af borðinu og ég mun hlusta á það. Þeir vilja að við könnum nánar möguleika á láglendisvegi eins og kom fram í máli hv. þingmanns. Nákvæmlega það erum við að gera. Þá eru ýmsir kostir mögulegir. Mögulegt er að fara í gegnum Hjallahálsinn, Vegagerðin mun kanna það og gera rannsóknir á möguleika á göngum. Það er líka mögulegt að fara í þveranir fjarða. Það er mjög umdeilt að vísu en margir hafa viljað fara þá leið. Mér finnst hún alveg koma til greina og vissulega þarf að skoða hana. Það verk er þegar hafið af hálfu Vegagerðarinnar. Þar koma ýmsir kostir til greina, t.d. þverun á Þorskafirðinum utarlega og komast þannig yfir í Skálanesið. Síðan er sá kostur sem menn hafa talað fyrir í Reykhólasveit, að fara með veginn þaðan og yfir í Skálanes og nota tækifærið í leiðinni og gera sjávarfallsvirkjun. Sá hængur er á að það er gríðarlega dýr framkvæmd, talin kosta um 13 milljarða kr. og við höfum ekki efni á svo dýrri framkvæmd á allra næstu árum. En einnig þetta vil ég skoða..

Með öðrum orðum, ég hef óskað eftir því við Vegagerðina að hún skoði alla þessa láglendiskosti. (Gripið fram í: Líka leið B.) Hér kallar fyrrverandi samgönguráðherra úr sal leið B sem er hin umdeilda leið um Teigsskóg. Nei. Ég tel að sú leið sé algerlega út úr kortinu (Gripið fram í: Nei.) einfaldlega vegna þess að þar með kasta menn fé á glæ. Það mundi kosta okkur, og við erum búin að ganga úr skugga um það, áralangt jag og dýr málaferli sem auk þess væru mjög áhættusöm því að það væri mjög líklegt, eins og kom út úr þessu samráði þar sem við hlustuðum á náttúrufræðinga, Skipulagsstofnun, umhverfisráðuneyti og fjölmarga aðra aðila, (Forseti hringir.) að þeir sem mundu vilja fara þá leið mundu tapa málinu. Frá minni hálfu er sú leið út úr kortinu en þær leiðir aðrar (Forseti hringir.) og tillögur sem hv. þingmaður setti fram er allar verið að skoða.