140. löggjafarþing — 47. fundur,  24. jan. 2012.

tollalög.

367. mál
[19:02]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Við erum búin að ræða hér tvö mál sem hæstv. fjármálaráðherra hefur flutt. Ég sé hvorki formann efnahags- og viðskiptanefndar á fundinum né aðra nefndarmenn úr þeirri ágætu nefnd sem fær þó málið til umsagnar. Þá er spurningin: Hvers virði er umræðan og hvað er maður að tala um ef skilaboðin komast ekki til nefndar?