140. löggjafarþing — 72. fundur,  13. mars 2012.

upplýsingaréttur um umhverfismál.

59. mál
[15:44]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ólína Þorvarðardóttir) (Sf) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég geri alvarlega athugasemd við að menn fái — að vísu með kurteislegri athugasemd af hálfu forseta — að dylgja í ræðustóli. Hér væri hægt að dylgja um margt úr lífi þingmanna, bæði opinbert og óopinbert. Ég stilli mig um að svara þingmanninum Árna Johnsen með sama hætti og ætla að hlífa honum við því að rifja upp einstök atvik úr ævisögu hans.