140. löggjafarþing — 111. fundur, 1. júní 2012.
sjúkratryggingar og lyfjalög.
256. mál
Hæstv. forseti. Hér leggur meiri hlutinn til breytingu á nýjasta efnismálslið c-liðar. Þar með kemur hann til móts við athugasemdir í nefndaráliti okkar í minni hlutanum og bætir það ákvæði sem síðan verður borið upp í heild sinni á eftir. Þess vegna er hægt að styðja þessa breytingartillögu.