140. löggjafarþing — 128. fundur,  19. júní 2012.

frestun á fundum Alþingis.

859. mál
[23:19]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan er svohljóðandi:

„Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 19. júní 2012 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 11. september 2012.“

Tillagan skýrir sig sjálf.