141. löggjafarþing — 31. fundur,  7. nóv. 2012.

útiræktun á erfðabreyttum lífverum.

193. mál
[17:21]
Horfa

Flm. (Þuríður Backman) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir þingsályktunartillögu um bann við útiræktun á erfðabreyttum lífverum. Auk mín eru hv. þingmenn Birgitta Jónsdóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Þór Saari, Þráinn Bertelsson og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir meðflutningsmenn að þessari þingsályktunartillögu sem hljóðar svo:

Alþingi ályktar að fela umhverfis- og auðlindaráðherra að skipa starfshóp er vinni að breytingum á lögum og reglugerðum í þeim tilgangi að banna útiræktun á erfðabreyttum plöntum eigi síðar en 1. janúar 2014.

Greinargerðin er ekki löng, hæstv. forseti, svohljóðandi:

Þingsályktunartillaga sama efnis var flutt á 140. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga.

Með tillögu þessari er lagt til að starfshópur sérfræðinga á vegum umhverfis- og auðlindaráðherra undirbúi breytingar á lögum og reglugerðum sem varða ræktun á erfðabreyttum plöntum, þ.e. um afmarkaða notkun erfðabreyttra lífvera og sleppingu eða dreifingu út í umhverfið miðað við íslenskar aðstæður. Í tillögunni felst að slík ræktun fari í kjölfarið einungis fram inni í lokuðum gróðurhúsum eða tilraunastofum þar sem hægt verði að hafa stöðugt eftirlit með henni og tryggt sé að erfðabreytt efni sleppi ekki út í nærumhverfi ræktunarsvæðis.

Þau lög sem málið varðar og þarfnast endurskoðunar, a.m.k. sum hver, eru lög um erfðabreyttar lífverur, nr. 18/1996, og eftirfarandi reglugerðir: nr. 493/1997, um sleppingu eða dreifingu og markaðssetningu erfðabreyttra lífvera, nr. 68/1998, um ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur, nr. 583/2000 um innflutning, ræktun og dreifingu útlendra plöntutegunda, nr. 275/2002, um afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera, og nr. 276/2002, um afmarkaða notkun erfðabreyttra lífvera, annarra en örvera. Meðfylgjandi viðaukar þessara laga og reglugerða þarfnast einnig endurskoðunar, til að mynda viðauki um aðgreiningu erfðabreyttra lífvera eftir áhættuflokkum, sérstaklega með tilliti til niðurstöðu nýrra vísindalegra rannsókna á viðkomandi fræðasviðum.

Að mati flutningsmanna er nauðsynlegt að leggja af útiræktun á erfðabreyttum plöntum til þess að vernda hreinleika íslenskrar náttúru og með tilliti til siðferðislegrar skyldu núlifandi kynslóðar til að koma í veg fyrir að einkenni hennar glatist. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði til árið 2010 að einstökum aðildarríkjum yrði heimilað að takmarka eða banna slíkra ræktun innan eigin landamæra, ekki eingöngu vegna áhrifa á heilsu og umhverfi heldur einnig af félagsfræðilegum og efnahagslegum ástæðum. Væri það enn fremur í samræmi við varúðarregluna og alþjóðlega samninga á borð við Cartagena-bókunina um líföryggi, Codex Alimentarius og Árósasamninginn. Vaxandi áhugi er í ríkjum Evrópu á að skilgreina lönd eða svæði sem laus við erfðabreytta ræktun og má í því sambandi vísa til ályktunar þings Evrópuráðsins um notkun erfðabreyttra lífvera í landbúnaði frá 11. mars 2011. Mörg ríki innan Evrópusambandsins gera nú kröfu um að geta bannað ræktun erfðabreyttra lífvera, að hluta eða öllu leyti.

Hæstv. forseti. Við flutningsmenn erum með þessari þingsályktunartillögu að fylgja eftir þróuninni í Evrópu. Það er ekki að ástæðulausu sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og Evrópuráðið hafa ályktað, sett reglur um þetta efni og hvatt til þess að löndin sinni þessum málum, enda fer það eftir kröfu margra Evrópusambandsríkja. Ég tel að við eigum að vera í þeirra hópi.

Þetta er ekki eingöngu út frá erfðaefnum og umhverfi, heldur ekki síður af félagsfræðilegum og efnahagslegum ástæðum. Við höfum verið að markaðssetja Ísland sem hreint land. Náttúra landsins hefur verið aðalaðdráttarafl ferðamanna hingað til. Menning landsins dregur einnig að. Við mundum undirstrika hreinleikann enn frekar með því að setja á bann við útiræktuninni og taka þátt í þeirri hvatningu og þróun sem er í mörgum Evrópuríkjum.

Hæstv. forseti. Að umræðu lokinni óska ég eftir því að málinu verði vísað til umhverfis- og samgöngunefndar. Það skiptir máli að málið fari núna til umsagnar og meðferðar í nefndinni og það skiptir máli að það verði síðan afgreitt á þingi.