141. löggjafarþing — 83. fundur,  19. feb. 2013.

byggingarvörur.

543. mál
[15:12]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um byggingarvörur. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð ESB nr. 305/2011, um samræmd skilyrði fyrir markaðssetningu byggingarvara. Reglugerðinni er ætlað að leysa af hólmi eldri tilskipun ráðsins 89/106/EBE, um samræmd skilyrði fyrir markaðssetningu byggingarvara. Sú tilskipun var innleidd á sínum tíma með reglugerð um viðskipti með byggingarvörur, nr. 431/1994.

Ákvæði um viðskipti með byggingarvörur er í lögum um mannvirki og er gert ráð fyrir að frumvarp þetta, verði það að lögum, leysi þá af hólmi þau ákvæði laga um mannvirki.

Reglugerð ESB, um samræmd skilyrði fyrir markaðssetningu byggingarvara, tók gildi í apríl 2011 innan Evrópusambandsins, en gildistöku meginhluta hennar er þó frestað til 1. júlí 2013.

Afar mikilvægt er fyrir byggingarvörumarkaðinn á Íslandi, m.a. í ljósi markmiðs um frjálst flæði byggingarvöru innan Evrópu, að reglugerðin verði innleidd fyrir gildistöku hennar 1. júlí næstkomandi og þar með það sameiginlega kerfi sem reglugerðin gerir ráð fyrir. Að öðrum kosti verður samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja á þessu sviði ekki tryggð.

Hin nýja reglugerð ESB er skýr og ítarleg og tók undirbúningur hennar langan tíma. Því er ekki fyrirsjáanlegt að breytingar á henni verði tíðar innan Evrópusambandsins. Vegna þessa og til að tryggja skýra lagastoð hennar er reglugerðin lögð fram sem fylgiskjal með frumvarpi þessu og þar með lagt til að henni verði veitt beint lagagildi.

Í september 2012 hélt ráðuneytið ásamt Mannvirkjastofnun samráðsfund með Samtökum iðnaðarins og Samtökum verslunar og þjónustu um efni reglugerðar um samræmd skilyrði fyrir markaðssetningu byggingarvara og innleiðingu hennar. Voru drög að frumvarpi send níu aðilum til umsagnar í kjölfarið. Ráðuneytinu bárust umsagnir um frumvarpið frá fjórum aðilum og voru þá gerðar nokkrar breytingar frá drögunum.

Í hinni nýju reglugerð um samræmd skilyrði fyrir markaðssetningu byggingarvara er að meginstefnu til byggt á sömu sex grunnkröfunum og í eldri tilskipun auk nýrrar grunnkröfu um sjálfbærni. Byggingarvara skal því henta til byggingar mannvirkja og fullnægja tilteknum grunnkröfum sem flokkaðar eru í burðarþol og stöðugleika, varnir gegn eldsvoða, hollustu, heilsu og umhverfi, öryggi við notkun, hávaðavarnir, orkusparnað, hitaeinangrun og sjálfbæra nýtingu auðlinda.

Frumvarpið er í fjórum köflum ásamt reglugerð ESB nr. 305/2011, sem er fylgiskjal með frumvarpinu. Í I. kafla frumvarpsins er kveðið á um þá meginreglu laga um mannvirki að óheimilt sé að nota byggingarvörur til mannvirkjagerðar nema þær uppfylli kröfur laganna. Einnig er kveðið á um ábyrgð eiganda mannvirkis, en hann kostar gerð mannvirkisins og rekstur og ber því endanlega ábyrgð á vali á byggingarefni. Um ábyrgð fagaðila fer hins vegar samkvæmt mannvirkjalögum.

Í II. kafla frumvarpsins er fjallað nánar um framkvæmd reglugerðar ESB nr. 305/2011. Lagt er til að Mannvirkjastofnun gegni hlutverki vörutengiliðar fyrir byggingariðnaðinn og að upplýsingar frá stofnuninni séu að meginreglu til veittar án endurgjalds. Lagt er til að yfirlýsing um nothæfi byggingarvöru skuli vera á íslensku, eins og verið hefur, sem og leiðbeiningar um notkun byggingarvöru og upplýsingar um öryggi. Hins vegar þykir nægjanlegt að gögn um byggingarvörur sem afhenda ber Mannvirkjastofnun geti verið á öðru tungumáli sem stofnunin samþykkir.

Í frumvarpinu er lagt til að ráðherra tilnefni tæknimatsstofnanir og annist eftirlit með þeim. Ráðherra sér einnig um tilkynningar til stjórnvalda á EES-svæðinu um aðila sem hafa heimild til að framkvæma verkefni þriðja aðila við mat á nothæfi og sannprófun á stöðugleika þess og hefur eftirlit með tilkynntum aðilum.

Í reglugerð um samræmd skilyrði fyrir markaðssetningu byggingarvara er einungis heimilt að nota þær aðferðir sem tilgreindar eru í samhæfðum stöðlum eða evrópsku tæknimati og eru samhæfðir staðlar því skyldubundnir. Í frumvarpinu er því gert ráð fyrir að samhæfðir evrópskir staðlar sem samþykktir eru á grundvelli reglugerðarinnar og innleiddir af staðlaráði séu skyldubundnir og að yfirlit yfir þá sé birt á vefsíðu Mannvirkjastofnunar.

Í III. kafla frumvarpsins eru settar fram kröfur er varða byggingarvörur sem ekki falla undir samhæfðan evrópskan staðal eða evrópskt tæknimat og eru því utan gildissviðs reglugerðar ESB nr. 305/2011. Meginreglan er sú að gefa skal yfirlýsingu um nothæfi byggingarvöru áður en hún er markaðssett eða notuð í mannvirki. Gefa skal yfirlýsingu um nothæfi samkvæmt reglugerðinni. Í kaflanum eru einnig tilgreindir þeir eiginleikar og þættir vörunnar sem gera þarf grein fyrir og er krafa gerð um staðfestingu óháðs aðila á nothæfi byggingarvöru. Gert er ráð fyrir að staðfestingar á nothæfi sem gefnar eru út af viðurkenndum aðilum á EES-svæðinu séu að meginreglu til teknar gildar á Íslandi. Undantekning frá því er að ef um er að ræða byggingarvöru sem hefur eiginleika þar sem taka þarf tillit til séríslenskra aðstæðna. Til dæmis er þekkt að lagnaefni sé almennt ekki prófað erlendis fyrir það hitastig sem algengt er hjá íslenskum veitum.

Að lokum er í IV. kafla frumvarpsins fjallað um opinbert markaðseftirlit, heimild til skoðunar og upplýsingaskyldu, réttarúrræði Mannvirkjastofnunar, dagsektir, förgun byggingarvöru og lagfæringu o.fl. Ákvæði þessi eru að mestu leyti sambærileg eða samhljóða gildandi ákvæðum mannvirkjalaga.

Virðulegur forseti. Ég hef hér rakið meginefni frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.