143. löggjafarþing — 11. fundur,  17. okt. 2013.

Landsvirkjun.

16. mál
[14:36]
Horfa

Flm. (Björt Ólafsdóttir) (Bf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um eigendastefnu fyrir Landsvirkjun fyrir hönd þingflokks Bjartrar framtíðar. Í frumvarpinu er lagt til að sett verði í lög ákvæði þess efnis að samin verði eigendastefna ríkisins vegna eignarhalds þess á Landsvirkjun. Lagt er til að ráðherra leggi á fjögurra fresti fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um þessa eigendastefnu. Landsvirkjun er eitthvert mikilvægasta fyrirtæki íslensks samfélags og er í eigu ríkisins. Stefna Landsvirkjunar, áform fyrirtækisins og ákvarðanir sem þar eru teknar hafa mikil áhrif hér á landi og hafa stundum verið æðiumdeild. Mikilvægt er að um fyrirtækið og framkvæmdir á vegum þess ríki sem mest sátt. Slíkri sátt er einna helst hægt að ná með opinni umræðu. Gerð opinberrar eigendastefnu yrði vettvangur slíkrar umræðu.

Flutningsmenn eru að mestu ánægðir með þær áherslur sem einkennt hafa stefnu og störf Landsvirkjunar á undanförnum árum. Áhersla hefur verið lögð á upplýsingagjöf til almennings og samræðu. Yfirstjórn fyrirtækisins hefur með opnu og augljósu móti látið fyrirætlanir sínar í ljós og skoðanir sínar hvað varðar áherslu í rekstri og uppbyggingu. Sú áherslubreyting hefur meðal annars orðið að forsvarsmenn fyrirtækisins hafa í málflutningi sínum lagt áberandi meiri áherslu á mikilvægi þess að orkuauðlindir skapi meiri beinan arð til eigenda fyrirtækisins, þjóðarinnar, en raunin hefur verið. Það er mat flutningsmanna að það væri mjög til bóta að slík áherslubreyting yrði jafnframt rædd markvisst á þingi og studd með opinberri eigendastefnu. Þetta er algjört lykilatriði.

Með skýrri stefnumörkun eigenda eru markmið, hlutverk og ábyrgð skýrð auk þess sem þáttur þeirra í ákvörðunum um mikilvæg málefni og grundvallarstefnumörkun er tryggður. Það má því segja að tilgangur eigendastefnu sé að tryggja lýðræðislega, gagnsæja og faglega stjórnun viðkomandi fyrirtækis í ríkiseigu. Mikilvægt að eigendastefnan sé aðgengileg almenningi og fjölmiðlum.

Þegar kemur að því að setja saman eigendastefnu vakna margar spurningar og hafa þarf í huga ýmis sjónarmið. Almennt séð er það lykilatriði í hugum margra þegar kemur að virkjanastefnu að fyrir liggi hvaða samfélagslegum ávinningi virkjanir skili, svo sem beinum arði. Skili þær litlum ávinningi er þeim mun minni ástæða til að ráðast í gerð þeirra. Liggi hins vegar fyrir raunhæf stefna um að ná sem mestum arði og ávinningi af orkusölu til iðnaðar getur það haft mótandi áhrif á viðhorf mjög margra til virkjana. Skýr stefna hvað þetta varðar er því lykilatriði.

Það getur líka skipt sköpum í hinni mikilvægu umræðu um náttúruvernd og virkjanir að skoðað sé hvernig Landsvirkjun getur hámarkað arð af þeirri orkuframleiðslu sem þegar á sér stað. Nú þegar eru uppi hugmyndir um þetta innan Landsvirkjunar, t.d. með að stækka túrbínu í þeim virkjunum sem fyrir eru.

Skýr stefna, sem Landsvirkjun sjálf hefur raunar markað, um að afla meiri tekna af núverandi orkuframleiðslu getur hugsanlega minnkað þörfina á því að ráðist sé í umfangsmiklar og umdeildar virkjanaframkvæmdir víða um land í framtíðinni. Allt þetta þarf að ræða. Grundvallarspurningarnar eru þessar: Hvers vegna viljum við virkja? Hvað viljum við fá út úr orkuauðlindunum okkar? Hvernig á Landsvirkjun, sem stærsti orkuframleiðandi landsins, að haga stefnu sinni og áherslu?

Verð á orku til almennings yrði væntanlega líka til umræðu við gerð eigendastefnunnar. Ef stefnan yrði sú að hámarka arðinn af orkusölu, t.d. með sölu á svokallaðri stýranlegri orku sem hefur verið kölluð umframorka til útlanda í gegnum sæstreng, er líklegt að eigandi fyrirtækisins, þjóðin, mundi vilja árétta þá stefnu sem leynt og ljóst hefur verið fylgt hingað til, að verð til almennings haldist lágt. Þá gæti einnig komið til álita að taka á vanda svokallaðra kaldra svæða með eigendastefnu með því að kveða þar á um að einhvers konar fyrirkomulagi skuli komið á þar sem aðstöðumunur væri jafnaður eftir landsvæðum.

Hvaða stefna er mörkuð varðandi Landsvirkjun hefur þannig úrslitaþýðingu fyrir kjör og lífsgæði fjölda fólks. Ekki einasta skiptir orkuverð þar lykilmáli heldur einnig hvaða væntingar hið opinbera hefur til arðgreiðslna frá fyrirtækinu. Takist að skapa meiri arð af orkusölunni án þess að hækka verðið til almennings, svo dæmi sé tekið um stefnumörkun sem gæti orðið ofan á, er ljóst að umtalsverðir fjármunir mundu þar með renna árlega í ríkissjóð. Spurningin til grundvallar eigendastefnunni yrði þá þessi: Væri meiri arður eftirsóknarverður? Í hvað væri hægt að nota féð? Er önnur stefna betri, t.d. sú að selja orkuna á lágu verði til að laða að stóra, staðbundna vinnuveitendur eins og álframleiðendur?

Þetta eru allt spurningar sem við þurfum að svara á Alþingi.

Aðgerðir Landsvirkjunar varðandi orkuframleiðslu hafa vitaskuld gríðarmikla þýðingu fyrir umhverfismál. Það er að mestu viðfangsefni rammaáætlunar um virkjun og vernd hvaða stefnu þjóðin setur sér um náttúruvernd og virkjanaframkvæmdir. Flutningsmenn leggja þunga áherslu á að fyllsta samræmis sé gætt milli eigendastefnunnar og þeirrar áætlunar og að sjálfbær auðlindanotkun í sem mestri sátt við umhverfi og náttúru sé ætíð höfð að markmiði.

Þess má að lokum geta að Reykjavíkurborg hefur sett sér eigendastefnu varðandi eignarhlut sinn í Orkuveitu Reykjavíkur. Nærtækt væri að líta til reynslunnar af þeirri vinnu þegar gerð verður eigendastefna fyrir Landsvirkjun, enda um sambærilegt fyrirtæki að ræða.