143. löggjafarþing — 68. fundur,  25. feb. 2014.

um fundarstjórn.

[22:25]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Ég kýs að líta á þetta sem afsökunarbeiðni og þar með að ummæli hæstv. utanríkisráðherra sem féllu hér í frammíkalli séu afturkölluð. Friðarins vegna tek ég það gilt, okkur getur öllum orðið á í hita leiksins, en ég tek engu að síður undir tillögur um að við slítum þessum fundi og förum heim að sofa.