144. löggjafarþing — 111. fundur,  22. maí 2015.

sáttatónn í stjórnarliðum.

[12:15]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Ég fagna hinum mikla sáttatón sem kominn er í stjórnarliðið og sé fyrir mér að þetta mál verði leyst í dag. Það getur ekki annað verið þegar þingflokksformenn beggja stjórnarflokkanna lýsa því svo eindregið (Gripið fram í.) að þær vilji að við finnum lausn á þessu erfiða máli. Það er engin skömm að því fyrir meiri hluta atvinnuveganefndar að taka þátt í þessu sáttaferli. Ég er sannfærð um að þegar þingmenn í þeim meiri hluta stíga upp í pontu muni þeir lýsa yfir jafn miklum sáttavilja og mátti heyra í ræðum forustumanna þingflokka þeirra.