144. löggjafarþing — 116. fundur,  1. júní 2015.

stefna í efnahagsmálum.

[10:47]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Herra forseti. Það er full ástæða til þess að ræða efnahagsmálin í þessu samhengi, hvert stefni í heildarsamhengi hlutanna. Það er rétt sem hv. þingmaður nefnir að launahækkanir af þeirri stærðargráðu sem menn hafa samið um til þessa munu setja einhvern verðbólguþrýsting, þó finnst mér að við séum að fá niðurstöðu í þau mál sem er þó nokkuð vægari eða mildari hvað varðar verðbólguáhrif en margt af því sem maður heyrði í umræðunni undanfarna mánuði og óttaðist að yrði á endanum niðurstaðan.

Hvernig fara skattalækkanir saman við þessar launabreytingar? Við erum að hrinda í framkvæmd skattalækkunum til þess að styðja við gerð kjarasamninga og við látum þær taka gildi yfir lengri tíma þannig að ég held að þær styðji vel við gerð kjarasamninga og þetta tvennt eitt og sér sé ekki til trafala. Tollalækkanir á föt og skó munu færa verslun aftur inn í landið og það er í mínum huga ekki til þess fallið að raska þessu jafnvægi.

En ef við skoðum efnahagslífið og stígum aðeins frá þeim kjaradeilum sem hafa verið og skoðum hvað er undirliggjandi, hvað er að gerast, þá erum við núna ef vel spilast úr hlutunum að upplifa lengsta samfellda hagvaxtarskeið seinni tíma, það er mjög jákvætt. Það er meiri vöxtur í kortunum á Íslandi en víðast hvar annars staðar. En hvernig okkur mun ganga í glímunni við verðbólguna er kannski stóra spurningin. Þá er líka mjög mikilvægt þegar upp verður staðið að menn segi ekki: Þetta var á endanum allt saman krónunni, íslensku krónunni, um að kenna.

Vinnumarkaðurinn verður að standa með og vinna með stjórnvöldum ef það á að halda aftur af verðbólgu og ná niður vöxtum. Við höfum verið að bjóða upp á slíkar leiðir. Vinnumarkaðurinn hefur sett óvenjumikinn þrýsting sem þó er (Forseti hringir.) vægari en í stefndi, en ég tel að allar aðstæður séu til þess að (Forseti hringir.) það spilist með farsælum hætti úr þessum stóru stærðum.