145. löggjafarþing — 11. fundur,  23. sept. 2015.

rannsókn kjörbréfs.

[15:03]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar um að Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Norðvest., geti ekki gegnt varaþingmennsku fyrir Guðbjart Hannesson, 5. þm. Norðvest., á næstunni. Því hefur hann óskað eftir því að í dag taki Hörður Ríkharðsson sæti á Alþingi. Hann er 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu.

Að ósk forseta Alþingis hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Herði Ríkharðssyni. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kjörbréfið.