145. löggjafarþing — 18. fundur, 8. okt. 2015.
verslun með áfengi og tóbak o.fl.
13. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þátttöku hans í umræðunni um þetta mál. Mig langar að spyrja hann hvort Vínbúðin sé ekki eiginlega komin í stórverslun. Er Vínbúðin ekki búin að staðsetja sig í stærstu verslunarmiðstöðvum landsins eða við hliðina á stórmarkaðnum? Ég er að pæla hvernig kaupmaðurinn á horninu fer frá því. Getur hv. þingmaður bent mér á Vínbúð sem er nálægt kaupmanninum á horninu?