146. löggjafarþing — 22. fundur,  31. jan. 2017.

heilbrigðisáætlun.

57. mál
[19:07]
Horfa

Forseti (Jón Þór Ólafsson):

Forseti þarf ekki að minna hv. þm. Steingrím J. Sigfússon á að þingmálið er íslenska. Þetta lærði maður fljótt og vel þegar maður var nýr þingmaður á síðasta kjörtímabili. Hann tekur það kannski upp í andsvörum að þýða þetta, því að ég ekki nema rétt skreið í gegnum MR-dönskuna. Alla vega veit forseti ekkert hvað maðurinn var að tala um, hv. þingmaður að sjálfsögðu.