146. löggjafarþing — 65. fundur,  15. maí 2017.

rannsókn kjörbréfs.

[15:00]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Borist hefur bréf frá hv. 6. þm. Suðurk., Ara Trausta Guðmundssyni, um að hann geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því er óskað eftir að í dag taki Daníel E. Arnarsson sæti á Alþingi, en hann er 2. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu. 1. varamaður á lista í kjördæminu hefur boðað forföll.

Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Daníel E. Arnarssyni. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til að fjalla um kjörbréfið.