146. löggjafarþing — 65. fundur,  15. maí 2017.

rannsókn kjörbréfs.

[15:00]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Brynjar Níelsson) (S):

Hæstv. forseti. Eins og fram kom í máli hæstv. forseta hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd komið saman til að fara yfir kjörbréf Daníels E. Arnarssonar frá landskjörstjórn. Varð samhljóða niðurstaða nefndarinnar að gera ekki athugasemd við kjörbréfið.