146. löggjafarþing — 75. fundur,  30. maí 2017.

umgengni um nytjastofna sjávar og Fiskistofa.

412. mál
[12:38]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Ásmundur Friðriksson) (S):

Virðulegi forseti. Ég flyt nefndarálit atvinnuveganefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um umgengni um nytjastofna sjávar og lögum um Fiskistofu, eftirlit með vigtunarleyfishöfum. Nefndin fjallaði verulega um þetta mál á mörgum fundum og fékk til sín fjölmarga aðila, þar á meðal frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Farmanna- og fiskimannasambandinu, Félagi vélstjóra og málmtæknimanna, Hafnasambandi Íslands, Hafrannsóknastofnun, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, auk fleiri aðila eins og fram kemur í nefndarálitinu.

Frumvarp þetta er lagt fram til að styrkja heimildir Fiskistofu til að hafa eftirlit með vigtunarleyfishöfum. Í 1. gr. er mælt fyrir um að ef í ljós kemur við eftirlit Fiskistofu hjá vigtunarleyfishafa verulegt frávik á íshlutfalli í afla skips í tiltekinni fisktegund miðað við meðaltal íshlutfalls skipsins í fyrri löndunum skuli Fiskistofa fylgjast með allri vigtun hlutaðeigandi vigtunarleyfishafa í allt að sex vikur. Ef vigtunarleyfishafi þarf að sæta auknu eftirliti samkvæmt framangreindu greiðir hann allan kostnað af því samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu. Samkvæmt 2. gr. skal Fiskistofa afturkalla vigtunarleyfi í eitt ár ef ítrekað verða veruleg frávik á íshlutfalli í afla hjá skipum sem landa hjá vigtunarleyfishafa.

Þeir sem hafa skilað nefndinni umsögn um frumvarpið styðja að það verði að lögum, enda er mikilvægt að skráning afla sé eins nákvæm og unnt er. Fram kom við umfjöllun um málið að verði frumvarpið að lögum komi það til með að auka áreiðanleika í vigtun sjávarafla og muni hafa varnaðaráhrif. Nefndin tekur undir framangreint en bendir á að lagaheimildir sem Fiskistofu eru veittar samkvæmt frumvarpinu eru matskenndar og því afar brýnt að stofnunin gæti að réttaröryggi þeirra sem sæta eftirliti.

Hv. þm. Gunnar Ingiberg Guðmundsson ritar undir álit þetta með fyrirvara og áskilur sér rétt til að leggja fram eða styðja breytingartillögur við málið.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Undir þetta nefndarálit rita hv. þingmenn Páll Magnússon, formaður, Ásmundur Friðriksson, framsögumaður, Hanna Katrín Friðriksson, Gunnar Ingiberg Guðmundsson, með fyrirvara, eins og hér hefur komið fram, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Logi Einarsson, Óli Björn Kárason, Sigurður Ingi Jóhannsson og Theodóra S. Þorsteinsdóttir.