148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

hvítbók um fjármálakerfið.

[16:36]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Frú forseti. Eitt brýnasta hagsmunamál þjóðarinnar fyrir utan að fá stöðugan gjaldmiðil er að fá alþjóðlega samkeppni fyrir neytendur á fjármálamarkaði. Ég held að það sé ekki langt í að við munum eiga kost á að vera í viðskiptum við Facebook-banka eða Google-banka og það er framtíðarsýn sem ég óttast ekki. Íslenskir neytendur eiga skilið að fá bestu mögulegu kjör á lánamarkaði en þeir eru langt frá því í dag. Mér er nokk sama hvers lenskur slíkur banki er.

Hins vegar hræða sporin þegar kemur að sölu eignarhluta ríkisins í bönkunum, sérstaklega með Sjálfstæðisflokkinn við borðsendann. Hugsanleg sala þarf að vera fullkomlega gagnsæ. En ég man þegar ég heyrði í innanbúðarmanneskju í fjármálakerfinu stuttu eftir hrunið sem sagði að sá sem eignast banka muni eignast Ísland. Ég vil ekki að einhver ein eða tvær klíkur eignist Ísland. Við fengum nóg af því fyrir hrun.

Frú forseti. Ég vil líka gera að umtalsefni launaskriðið hjá fjármálafyrirtækjum. Hvenær var eiginlega ákveðið að launahæstu starfsmenn samfélagsins væru fólk í fjármálafyrirtækjum, fólk sem í eðli sínu er í þjónustustarfi fyrir viðskiptavini sína? Stjórnendur í fjármálakerfinu og jafnvel í ríkisbönkum eru í sumum tilvikum orðnir að ríkasta fólki landsins, ríkara en kúnnar þessara sömu fjármálafyrirtækja. Það þarf ekki annað en að fletta í tekjulistum blaðanna til að sjá það.

Bankar eiga að vera frekar íhaldssöm þjónustufyrirtæki fyrir neytendur og fyrirtæki þar sem góð kjör fyrir kúnnann eru í forgrunni en ekki yfirgengileg launakjör yfirmanna þessara sömu fjármálafyrirtækja.