149. löggjafarþing — 27. fundur, 6. nóv. 2018.
vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.
162. mál
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni framsöguna. Ég er með eina stutta fyrirspurn til hv. þingmanns.
Í II. kafla frumvarpsins er lögð til breyting á lögum um bifreiðagjald með síðari breytingum. Mér leikur forvitni á að vita hvort fornbílar falli þarna undir. Munu þeir nú greiða bifreiðagjald? Ef hv. þingmaður gæti upplýst mig um það.