149. löggjafarþing — 32. fundur,  15. nóv. 2018.

Frestun á skriflegum svörum.

[10:32]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 276, um áhættumat Hafrannsóknastofnunar á erfðablöndun í laxeldi, frá Teiti Birni Einarssyni.