149. löggjafarþing — 47. fundur, 11. des. 2018.
þungunarrof.
393. mál
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir vel flutta ræðu. Ég nefndi það áðan í fyrirspurn til hæstv. ráðherra og í andsvari áðan hvernig löggjöfinni er háttað í Bretlandi þar sem það er óheimilt að gefa upp kyn barns fyrr en að frestur til þungunarrofs eða fóstureyðingar er liðinn. Vil ég spyrja hv. þingmann: Hvers vegna heldur hann að þau lög hafi verið sett?