149. löggjafarþing — 51. fundur,  14. des. 2018.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

471. mál
[12:07]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað, með síðari breytingum. Þetta er frumvarp um starfsmenn þingflokka og aðstoðarmenn formanna stjórnmálaflokka. Nefndarálitið kemur frá allri stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Helga Bernódusson, skrifstofustjóra Alþingis, og Þórhall Vilhjálmsson, forstöðumann lagaskrifstofu Alþingis.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað, með síðari breytingum, að því er varðar starfsmenn þingflokka og formanna stjórnmálaflokka. Lagt er til að heimilt verði að ráða starfsmenn fyrir þingflokka eftir því sem fé er veitt til á fjárlögum hvers árs.

Frumvarpið er liður í áætlun um að styrkja Alþingi og starf þess. Tilgangur þess er að auka aðstoð við þingmenn og einkum þá sem enga beina aðstoð hafa. Starfsmenn þingflokka munu vinna margvísleg undirbúningsstörf fyrir þingmenn, t.d. við gerð þingmála, aðstoða við gagnaöflun og nefndastörf, auk samskipta við aðila utan þings fyrir hönd þingmanna. Með frumvarpinu er lögð áhersla á að þingflokkarnir hafi sem mest frelsi til að ákveða um störf starfsmannanna enda áherslur og þarfir mismunandi eftir þingflokkum.

Nefndin fjallaði um réttindi og skyldur starfsmanna þingflokka en í frumvarpinu er lagt til að um þá gildi ekki ákvæði laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins hvað varðar auglýsingu starfs, samanber 7. gr., áminningu, samanber 21. gr., og starfslok sem rekja má til sakar starfsmanns eða brots í starfi, samanber 44. og 45. gr. Fyrir nefndinni kom fram að þetta er lagt til vegna séreðlis þeirra starfa sem starfsmenn þingflokka inna af hendi. Gert er ráð fyrir að aðrar reglur starfsmannalaga gildi um réttindi og skyldur þeirra, svo sem lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Nefndin tekur fram að um ákvarðanir sem tengjast þessum starfsmönnum og varða starfsskilyrði þeirra, þar með talin starfslok, gildi almennar reglur um meðferð opinbers valds, m.a. að gæta þurfi að málefnalegum sjónarmiðum.

Nefndin telur að frumvarpið sé til þess fallið að styrkja Alþingi og þingmenn í störfum þeirra sem og að vanda vinnubrögð og auka gæði lagasetningar.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt.

Undir nefndarálitið ritar öll stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, sú sem hér stendur en einnig Brynjar Níelsson, Óli Björn Kárason, Líneik Anna Sævarsdóttir, Jón Steindór Valdimarsson, Þorsteinn Sæmundsson, Jón Þór Ólafsson, Kolbeinn Óttarsson Proppé og Þórunn Egilsdóttir.