meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir ræðuna. Í sambandi við síðustu spurningunni hjá þingmanninum um hvort við hefðum þurft að tala svona langt inn í nóttina ef fleiri hefðu tekið þátt í umræðunni væri ég vongóður um að umræðan hefði fengið lúkningu, þ.e. ef bæði stjórnarliðar og aðrir stjórnarandstöðuflokkar hefðu tekið þátt í umræðunni. Komið hefur margoft fram að málinu fylgir ekki mikið stolt frá stjórnvöldum sjálfum. Maður sér það bara á þeim tíma sem ræðumennskan um það hefur tekið, einhverjar sex mínútur fóru í að mæla fyrir málinu. Punktur.