149. löggjafarþing — 75. fundur,  5. mars 2019.

störf þingsins.

[13:40]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Margir hv. þingmenn ræða málið um ófrysta kjötið af miklu ábyrgðarleysi. Það væri óskandi að hægt væri að taka þá umræðu af meiri yfirvegun og skynsemi. Ljóst er að EFTA-dómur er fallinn, líkt og héraðsdómur og Hæstiréttur, og það er fyrst og fremst ábyrgðarleysi að bregðast ekki við. Frumvarp hæstv. landbúnaðarráðherra setur lýðheilsu og búfjárstofna í forgang og þeir sem til þekkja, faglegir aðilar, segja mótvægisaðgerðir ráðherrans sterkar.

En við flytjum inn mörg þúsund tonn af hráu kjöti árlega, nefnilega frosnu hráu kjöti. Fram til þessa hefur aldrei reynt á að kallað hafi verið inn kjöt vegna hættu á smiti, sem flutt hefur verið inn undir 30 daga frystiskyldu. Aldrei. Allt tal um að þetta sé í fyrsta sinn sem við leyfum hrátt kjöt og að hætta stafi af því, er markleysa. Munurinn er einungis hvort hrátt kjöt er flutt inn ferskt eða frosið. Við skulum muna að frysting drepur ekki sýklaónæmisbakteríur og í reynd eru meiri líkur á að þær berist með mannfólki en landbúnaðarafurðum. Þá mun innflutningurinn að sjálfsögðu mæta sömu kröfum og innlend framleiðsla. En hlutur neytenda er mikilvægur og að þeir fái upplýsingar um uppruna vöru og hreinleika til að taka upplýsta ákvörðun.

Breytingar á umhverfi grænmetisbænda gáfu góða raun þegar tollar voru afnumdir af nokkrum vöruflokkum. Grænmetisbændur fengu góða samkeppni sem þeir stóðust fyllilega og á því leikur enginn vafi að við þekkjum betur til og við treystum íslenskum landbúnaðarvörum. Mikilvægt er fyrir neytandann að hafa val og að verslun geti boðið það besta fáanlega hverju sinni. Við eigum ekki að hræðast þá samkeppni því að við getum fyllilega staðið undir henni og val og staða neytenda á að vera okkur mikilvæg. Það skapar hvata og nýsköpun fyrir íslenskan landbúnað að gera afurðir sínar að fyrsta kosti neytenda. Ég treysti íslenskum landbúnaði í þessari samkeppni en ég treysti fólki líka til að velja.

Ég velti því upp hvaða lausnir þingmenn hafi sem mæla gegn þessu af miklum móð. Einhver myndi segja að lausnin til að komast undan þessu væri að segja upp EES-samningnum. (Forseti hringir.) Ég árétta, fyrir þá sem efast um það, að það er ekki á stefnuskrá þessarar ríkisstjórnar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)