149. löggjafarþing — 104. fundur,  14. maí 2019.

störf þingsins.

[13:51]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Mál sem þingflokkar leggja fram eru mjög mörg. Núna bíða 116 mál 1. umr. frá öllum flokkum á þingi. Einnig bíða 98 mál afgreiðslu úr nefnd. Þau er sum endurtekið efni. Það eru bæði mál sem bíða 1. umr. sem voru nánast tilbúin á síðasta þingi til afgreiðslu úr nefnd, þurfti kannski örfáa fundi í viðbót til að fá einn eða tvo gesti. En þingið kláraðist og klippti á þingmálahalann.

Mál sem þurfa örlítið í viðbót til að klára komast ekki einu sinni í 1. umr. á þessu þingi því að mál sem voru lögð fram í upphafi þings, þingmannamál, hafa ekki öll komist að í umræðum á þingi. Það er ekki búið að klára þau mál sem voru lögð fram í september, í upphafi þings. Það er ekki búið að klára mál sem voru lögð fram við þingsetningarfund.

Það eru mörg mál sem bíða þess núna að komast úr nefnd. Það eru tilbúin nefndarálit. Það eina sem nefndin þarf að gera er að greiða atkvæði, já eða nei svo sem, alla vega að klára málið. Hefur nefndin lokið afgreiðslu sinni? er spurningin. Það má ekki svara henni.

Þetta er afbrigði af þessu þingmálahalasamningsstöðurugli sem á nákvæmlega ekkert skylt við málefnalega meðferð og faglega meðferð á málum heldur allt skylt við einhvers konar stjórnmálalega taktík og tog um það hver fái einhver verðlaun fyrir að afkasta miklu — eða réttara sagt litlu í þessu tilviki. Því eins og maður hefur heyrt, svona meðal íhaldsmanna inni á þingi, er markmið þeirra að gera sem minnst og við gerum það með því að gera ekki neitt.