149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

störf þingsins.

[13:39]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla í störfum þingsins að ræða einmitt það, störf þingsins. Hvert erum við eiginlega komin í störfum þessa þings þegar við sitjum uppi með það að einn þingflokkur heltekur nánast þingsalinn og störf hins löglega kjörnu þingmanna? Ég fór ásamt hæstv. forseta í heimsókn til Svíþjóðar í síðustu viku þar sem við kynntum okkur hvernig hlutirnir ganga fyrir sig þar. Þar skrá þingmenn sig daginn áður á mælendaskrá og tala að hámarki í átta mínútur, að algeru hámarki í átta mínútur. Það er nefnilega svo að það málþóf sem verið hefur í þessum sal, bæði síðustu nótt og í síðustu viku, er nær einsdæmi í þjóðþingum. Það að nokkrir þingmenn geti haldið uppi umræðum, farið í andsvör, eða ég leyfi mér frekar að segja meðsvör við sjálfa sig, þar sem þeir halda uppi innantómu síendurteknu hjákátlegu sjálfshóli er engum til sóma.

Virðulegur forseti. Ég velti því fyrir mér hvort ekki sé full ástæða til að fara að skoða það að við beitum 71. gr. þingskapa. Það er nefnilega svo að þegar þingmenn hafa haldið fjórar, fimm, jafnvel sex ræður og fjölda andsvara þá kemur bara ekkert nýtt fram í málinu. Hér sat ég undir fjölda ræðna í gærkvöldi og það kom ekkert nýtt fram, ekki neitt. Miðflokkurinn er á móti því að innleiða þriðja orkupakkann. Það er ljóst. Ég segi bara: Næsta mál á dagskrá, takk fyrir.