149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

tilkynning.

[10:48]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Starfsáætlun hefur verið tekin úr sambandi og samkvæmt hefð og túlkun er þá ekki þörf á að bera sérstaklega upp lengd þingfundar eins og vera ber á meðan starfsáætlun er í sambandi. En það er salurinn sem á að ráða og ef ágreiningur er um það hvort þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um meðan starfsáætlun er í gildi er sjálfsagt mál að bera það undir salinn, þannig að tillaga forseta mun koma til atkvæða.